þriðjudagur, júní 07, 2005
76 dagar!
Og við erum geðveikir. Það er auðvitað bara klikkun að vera búin að setja saman síðu 76 dögum fyrir brottför en þar sem við liggjum hér í miklu eirðarleysi og pælingum vegna komandi ferðalags þá er síðan að komast í gagnið. Það tók okkur einhverja 2 klukkutíma að finna slóð sem við vorum báðir sáttir við og loks komumst við að þeirri niðurstöðu að þar sem við ferðumst í austurátt nær allan tíman þá fanns okkur
www.austurferd.blogspot.com eiga vel við. Þess má geta að við vorum komnir með snilldar slóð,
www.their.blogspot.com en þessi annskoti var búinn að eigna sér hana.
Fleiri upplýsingar koma þegar nær dregur.
Skrifað klukkan 16:17 |
***